ᚠ ᚢ ᚦ

Um okkur

Sagan á bak við Ými

Edda, hús íslenskunnar, að utan
ᚠ ᚢ ᚦUm Ými

Goðin og hinir

Ýmir er kaffihús og veitingastaður með notalegt andrúmsloft í hjarta húsi íslenskunnar, Eddu. Nafnið er sótt til Ýmis, frumveru norrænnar goðafræði, og líkt og heimurinn sjálfur fléttast hér saman sögur, menning og góðir réttir.

Við leggjum áherslu á fersk hágæða hráefni, gott kaffi og hlýlegt umhverfi þar sem nemendur, kennarar og gestir geta hist, spjallað og notið sín. Hér eiga bæði goðin og allir hinir heima - öll eru velkomin.

Hvað er Edda?

Edda, hús íslenskunnar,var vígt árið 2023 og hýsir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ásamt Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Sporöskjulaga húsið, klætt kopar með áletrunum úr fornum handritum, stendur í spegiltjörn og geymir dýrmætustu handrit þjóðarinnar. Á framhlið þess má lesa orð úr Hávamálum: „Orð mér af orði orðs leitaði.“ Ýmir er kaffihúsið innan veggja þess, opinn staður fyrir öll sem vilja njóta góðs matar, kaffis og samræðna í góðu umhverfi.

ᚠ ᚢ ᚦ ᚬ ᚱ ᚴ

Sagan af Ými

Í norrænni goðafræði var Ýmir fyrsta veran, hrímþurs sem varð til úr eiturdropum Élivága þegar hrím og hiti mættust í Ginnungagapi. Af honum er kominn ættbálkur hrímþursa. Goðin Óðinn, Vili og Vé felldu hann síðar og sköpuðu heiminn úr líkama hans: jörðina úr holdi hans, höfin úr blóði hans, fjöllin úr beinum hans og himininn úr höfuðkúpu hans.

Eins og Ýmir gaf heiminum líf vonumst við til að gefa gestum okkar gott kaffi og góða stund.

— Úr Snorra-Eddu, Gylfaginningu

Borð og stólar á kaffihúsinu Ými
Heimsókn

Heimsæktu okkur

Staðsetning

Edda - Hús íslenskunnar
Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík

Opnunartími

Mán - fös
10:00–17:00
Laugardagur
13:00–17:00

Hafðu samband

+354 555 0100 · urvals@simnet.is

Bóka borð